Sæbjörg Ólafsvík  -  Björg Hellissandi  -  Dreki Snæfellsbæ

     Mynd vikunnar!!                     Gleðilega Páska

Home
Myndir
Um sveitirnar
Fréttir
Dagskrá
Dreki
Félagar
björgunarbáturinn

image
  07.04.2004
Slysavarnir  Alþjóðaheilbrigðisdagurinn

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur tilnefnt 7. apríl ár hvert sem alþjóðlegan heilbrigðisdag. Dagurinn er ætlaður til þess að hvetja til umræðu og fanga athygli almennings á mikilvægum heilbrigðismálum. Kjörorð dagsins í ár er umferðaröryggi og markar dagurinn jafnframt upphaf alþjóðlegs umferðaröryggisárs. Í tilefni af alþjóðaheilbrigðisdeginum í ár hefur samstarfshópur opinberra aðila, fyrirtækja og félagasamtaka tekið saman skýrsluna Afbrot í umferðinni. Í skýrslunni er kastljósinu beint að afbrotamanninum í umferðinni og afleiðingum afbrotanna, hvort heldur er fyrir einstaklinginn eða samfélagið sem heild. Þetta efni er alls ekki valið af handahófi enda benda rannsóknir til þess að að flest alvarleg slys og banaslys í umferðinni verði vegna einhvers konar brota á umferðarlögum. Vonast er til að skýrslan gefi heildstæða og raunsanna mynd af eðli og umfangi umferðarlagabrota og afleiðingum þeirra fyrir íslenskt samfélag. Ennfremur er vonast til að skýrslan veki ökumenn til umhugsunar um hversu löghlýðnir þeir eru í umferðinni.

 

28.03.2004.

Rúta fer útaf á fróðarheiði.

 Fólksflutningarúta frá Sæmundi í Borgarnesi fór útaf á sjötta tímanun í kvöld á fróðarheiði og var björgunarsveitin Sæbjörg frá Ólafsvík var kölluð út. Tíu manns voru í rútunni og engan sakaði. Vel gekk að ná rútunni upp og að yfirferð lokinni hélt hún áfram ferð sinni.

21.03.2004.

Áheitasöfnun Drekans yfir Jökulháls 21.mars

Glaður hópur að leggja af stað.

Í dag 21.mars gengu 13 unglingar og 3 umsjónarmenn með böru yfir fjallveg sem er 26 km. Til þess eins að strengja áheit. 8°C frost og roki var um þessar slóðir og snjór var mest alla leiðina, gangan tók 5 tíma í það heila. Ætlunin er að safna fyrir nýjum einkennisfatnaði. Þetta gekk nú ekki eftir óskum því fylgdarbíllinn festist, en göngugarparnir létu það ekki á sig fá og héldu áfram..Eftir gönguna var grillað fyrir mannskapinn.MYNDIR

 

Bátaflokkur
Landflokkur
Bilaflokkur

12.03.2004 

Togari strandar við Grundarfjörð og losnar aftur

 Togarinn, Ingimundur SH-335, 458 brúttótonna ísfisktogari, strandaði við Vesturboða á Grundafirði á sjöundatímanum í kvöld. Togarinn losnaði af sjálfsdáðum upp úr kl.20 og siglir í framhaldinu inn til Grundarfjarðar. Hringur SH nærstaddur togari var tilbúinn til að koma til aðstoðar ef til þyrfti en til þess kom ekki. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi, Björg, og björgunarsveitir á Snæfellsnesi voru kallaðar út ásamt því að Landhelgisgæslan var látin vita um málið. Ekki var talin ástæða til að senda þyrlu á vettvang þar sem takmörkuð hætta var á ferðum. Hæglætisveður er á þessum slóðum núna suðaustanátt með 9-13 m/sek.Allir skipverjar eru heilir á húfi og enginn leki kom að togaranum.

 

image
Myndina tók Alfons Finnsson ljósmyndari Morgunblaðsins í Ólafsvík fyrr í dag
 09.02.2004
 Þakplötur á flugi í Ólafsvík

Björgunarsveitin Sæbjörg á Ólafsvík og Björg frá Hellissandi vour kallaðar út um kl.13 í dag eftir að aftakaveður gerði í Ólafsvík með þeim afleiðingum að þakplötur losnuðu af 3 húsþökum og 5-6 bílar skemmdust við höfnina eftir að gámar fuku á þá.


 

 

                                   

                                       

www.snb.is/bjorgun  -  Björgunarsveitirnar í Snæfellsbæ  -  vefari Arnar Laxdal arnarlax@simnet.is