23. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga haldinn á skrifstofu Stykkishólmsbæjar miðvikudaginn 25. september kl. 16:30-18:00 Mættir; Baldvin Leifur Ívarsson, Guðrún Marta Ársælsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Júníana B. Óttarsdóttir og Matthildur S. Guðmundsdóttir auk Sigþrúðar Guðmundsdóttur félagsmálastjóra og Kára Eiríkssonar félagsráðgjafa 1. Námskeið um barnavernd. Félagsmálastjóri kynnir námskeið í barnavernd í samvinnu við Barnaverndarstofu 2. – 3. október n.k. og dreifir dagskrá. Nefndarmenn eru beðnir að kynna námskeiðið fyrir varamönnum sínum og boða þá sé þess kostur. Fyrsta hluta námskeiðsins sitja nýjir nefndarmenn, félagsmálastjóri og samstarfsaðilar skv. óskum nefndarinnar. Nefndin ákveður að bjóða á námskeiðið fulltrúum lögreglu, heilsugæslu, leik- og grunnskóla, svæðisskrifstofu í málefnum fatlaðra, félagsmiðstöðva og sóknarprestum. 2. Starfsreglur barnaverndarnefndar. Nefndarmenn hafa haft drög að reglum til yfirlestrar. Að lokinnu umræðu er ávkeðið að félagsmálstjóri vinni breytingatillögur sem verði lagðar fyrir á næsta fundi nefndarinnar. 3. Reglur vegna dagforeldra. Nefndarmenn hafa haft drög að reglum til yfirlestar. Gerðar eru tillögur um breytingar á 16. grein þar sem m.a. er kveðið á um eftirlit með dagforeldrum. Nefndin samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með fyrirvara um breytingu á 16. grein. 4. Stað- og tímasetning funda. Samþykkt að fundir verði haldnir á fjögurra til fimm vikna fresti, á þriðjudegi kl. 16:30 og að þeir skulu haldnir til skiptis á bæjarskrifstofum Stykkishólms- og Grundarfjarðarbæjar og á Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. 5. Endurskoðuð fundasköp. Nefndarmenn samþykkja endurskoðuð fundarsköp með fyrirvara um nýsamþykkta stað- og tímasetningu. 6. Trúnaðarmál sbr. trúnaðarmálabók. 7. Fundi slitið kl.18:00. |