Stjórnaðu leturstærð vefsins hér til hægriMinnsta leturMiðstærð letursStærsta letur
RSS
Senda fyrirspurnPrenta út þessa síðu
LeitaSýna allt veftréð

Stjórnkerfið
Þjónusta
Tæknideild
Um Snæfellsbæ
Myndaalbúm
Tenglar
Lausar lóðir
Skipulag

  BÆJARDYRNAR

     
__________________
            2013
 
_____________
     

 

3. bekkur GSNB setur niður kartöflur

 


Ferðast þú í sumar?

Já, innanlands

Já, erlendis

Bæði innanlands og erlendis

Nei, verð bara heima

Núna eru

að skoða vef
Snæfellsbæjar

 

 

  

 

 

 

 

   

 

 Svæðisgarður

 

Frystiklefinn

 

 

Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Brunamálanefnd, fundur nr. 1
Dags. 14. September 1998

Fundur í brunamálanefnd Snæfellsbæjar haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík 14. september 1998

 

            Mættir:

                        Sigurður Sveinn Guðmundsson

                        Jón Þór Lúðvíksson

                        Margrét Þórðardóttir

                        Svanur Aðalsteinsson

                        Svanur Tómasson

                        Jón Þorbergur Oliversson

 

Ritari var kosinn Margrét Þórðardóttir      

1)                  Athuga með bók fyrir nefndina.

 

2)                  Rætt var um að slökkviliðsstjóri myndi sitja fundina og var það samþykkt.

 

3)                  Rætt var um brunahana í Snæfellsbæ en alverlegt ástan er þar víða, t.d.:

i)                    Í Ólafsvík er enginn brunahani fyrir heilsugæsluna, blokkirnar við Engihlíðina, leikskólann, kirkjuna og Engihlíðina.

ii)                   Enginn brunahani er fyrir Suðurgarð, trillubátabryggju, trébryggju, Fiskmarkað og Bylgjuna.

iii)                 Enginn brunahani er í neðstu byggð á Rifi, t.d. þar sem olíutankabirgðir eru og nokkur einbýlishús.

Samþykkt var að þrýsta á þessa 3 staði og lagt til að bæjarfélagið taki fyrir 1-2 brunahana á ári næstu ár.  Búið er að biðja um þessa brunahana undanfarin ár en án árangurs.

 

4)                  Lögð var fram tillaga um að athugað verði með brunaslönguhjól á hvern bæ í Staðarsveit og Breiðuvík þar sem er heilsársbúseta.

 

5)                  Samþykkt að tala við Tryggva Konráðsson um að hann leigi húsnæði undir dælubúnað og aðstöðu á Arnarstapa eða að kaupa gám og staðsetja hann þar.

 

6)                  Slökkviliðið í Ólafsvík: 

i)                    Þar sem svæði stöðvarinnar er orðið helmingi stærra en áður þá er ástæða til að hafa liðsmenn ánægða.  Í mörg ár er búið að biðja um betri aðstöðu, laga t.d. kyndinguna, en það er mjög kalt í húsinu.  Mála þarf allt húsið, gólf og veggi.  Einhver aðstaða þarf að vera til þess að setjast niður.  Klósett er fyrir neðan allar hellur, úti á miðju gólfi, hurðin er orðin mjög slöpp og margt fleira.

ii)                   Litla dælu vantar til þess að dæla úr bátum, kjöllurum húsa og fleira.  Það er mjög átakanlegt að standa og horfa á þegar slökkviliðsmenn eru kallaðir út til að dæla úr bát en dælan sem til er er svo stór að hún kemst ekki að.

iii)                 Ég er mjög hræddur um að áhugi hjá strákunum fari mjög dvínandi.  Þetta eru áhugamenn sem eru ekki í þessu út af kaupinu.  Það væri mjög alvarlegt ef við missum einhverja út af þessu því að Slökkvilið Snæfellsbæjar er eitt af betri þjálfuðum liðinum á Íslandi.  Og það eru tiltölulega fáir í slökkviliðinu, það þyrftu að vera fleiri, en það gengur ekki vel að fá menn í þetta.

iv)                 Einnig er bíllinn orðinn 12 ára og margt sem þarf að viðhalda.

  

Með kveðju,

 

Margrét Þórðardóttir, fundarritari

 


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)