Björn Arnaldsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
1) Kosning formanns. Tillaga kom fram um Björn Arnaldsson. Tillagan samþykkt samhljóða.
2) Kosning varaformanns. Tillaga kom fram um Þröst Kristófersson. Tillagan samþykkt samhljóða.
3) Umsókn, dags. 02.07. 2002 um yfirtöku á viðbótarláni að upphæð kr. 1.471.068.- Samþykkt samhljóða. Sjá einkamálabók.
4) Umsókn, dags. 02.07. 2002 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.000.000.- Samþykkt samhljóða. Sjá einkamálabók.
5) Umsókn, dags. 02.07. 2002 um yfirtöku á viðbótarláni að upphæð kr. 859.661.- Samþykkt samhljóða. Sjá einkamálabók.
6) Tilboð í húseignina að Háarifi 59a, Rifi, dags. 25.06. 2002, frá Agniewszka M. Stefanczyk ogTomasz Powichrowski, Bárðarási 8, Hellissandi, að upphæð kr. 4.700.000.- Formaður lagði fram matsgerð frá Fasteignasölu Snæfellsness, dags. 21.06. 2002, varðandi húseignina. Samþykkt samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.
7) Varðandi framkvæmd á útleigu íbúða húsnæðisnefndar var samþykkt samhljóða að formaður hafi heimild til þess að ganga frá öllu varðandi þau mál fyrir hönd húsnæðisnefndar.
8) Varðandi sölu á húseignum húsnæðisnefndar var samþykkt samhljóða að formaður hafi heimild til þess að samþykkja kauptilboð í húseignirnar og ganga frá sölu á þeim í samráði við bæjarstjóra.