214. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn þriðjudaginn 15. júní 2010 og hófst hann í Félagsheimilinu Röst kl. 11:00.
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Rögnvaldur Ólafsson
Kristján Þórðarson
Erla Björk Örnólfsdóttir
Fríða Sveinsdóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Jón Þór Lúðvíksson, sá bæjarfulltrúi með lengsta setu í bæjarstjórn, setti fund og bauð fundarmenn og sérstaklega nýkjörna bæjarfulltrúa, velkomna. Var síðan gengið til boðaðrar dagskrár.
1) Kosning forseta bæjarstjórnar – til eins árs.
Tillaga kom um Jón Þór Lúðvíksson
Tillagan samþykkt samhljóða.
2) Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórna – til eins árs.
Tillaga kom um Kristján Þórðarson sem 1. varaforseta.
Tillagan felld 4:3
Tillaga kom um Rögnvald Ólafsson sem 1. varaforseta og um Kristján Þórðarson sem 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum. 3 sátu hjá.
3) Kosning þriggja aðila og jafnmargra til vara í bæjarráð - til eins árs.
Tillaga kom um eftirfarandi:
aðalmenn varamenn
Kristjana Hermannsdóttir - D Jón Þór Lúðvíksson - D
Kristín Björg Árnadóttir - D Rögnvaldur Ólafsson - D
Kristján Þórðarson - J Fríða Sveinsdóttir – J
Tillagan samþykkt samhljóða.
4) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga bæjarsjóðs og jafn margra til vara – til fjögurra ára
Tillaga kom um eftirfarandi:
aðalmenn varamenn
Ólína Bj. Kristinsdóttir - D Kristín Björk Gilsfjörð - D
Ragnheiður Víglundsdóttir - J Magnús Eiríksson - J
Tillagan samþykkt samhljóða.
5) Kosning þriggja aðalmanna og jafn margra til vara í yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar – til fjögurra ára
Tillaga kom um eftirfarandi:
aðalmenn varamenn
Hjálmar Kristjánsson - D Theódóra Einarsdóttir - D
Ólafur Bjarnason - D Aðalsteinn Jónsson - D
Kristinn Jón Friðþjófsson - J Ársæll Ársælsson - J
Tillagan samþykkt samhljóða.
6) Kosning aðal- og varamanna í nefndir og ráð Snfæfellsbæjar – til fjögurra ára.
Eftirfarandi tillögur komu um aðal- og varamenn í nefndir og ráð Snæfellsbæjar.
Atvinnu- og ferðamálanefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Margrét Björk Björnsdóttir - D Hafþór Svansson - D
Gunnar Ólafur Sigmarsson - D Guðbjartur J. Þorvarðarson - D
Björg Bára Halldórsdóttir - D Gunnar Helgi Baldursson - D
Þorkell Símonarson - J Guðrún Lára Pálmarsdóttir - J
Erla Björk Örnólfsdóttir - J Elías Róbertsson - J
Tillagan samþykkt samhljóða.
Félagsþjónustunefnd Snæfellinga:
Aðalmenn… varamenn…
Lára Sverrisdóttir - D Júníana Óttarsdóttir - D
Baldvin Leifur Ívarsson - J Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Umhverfis- og byggingarnefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Sigurjón Bjarnason - D Sturla Fjeldsted - D
Jónas Kristófersson - D Jóhann Pétur Guðjónsson - D
Bjarni Vigfússon - D Þröstur Kristófersson - D
Drífa Skúladóttir - J Ragnhildur Sigurðardóttir - J
Pétur Steinar Jóhannsson - J Hulda Skúladóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Hafnarstjórn:
Aðalmenn… varamenn…
Anton Ragnarsson – D Gísli Marteinsson - D
Arnar Laxdal Jóhannsson - D Heiðar Magnússon - D
Guðlaugur Gunnarsson - D Örn Arnarson - D
Alexander Kristinsson - J Friðþjófur Sævarsson - J
Bárður Guðmundsson - J Fríða Sveinsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Brunamálanefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Sigurður Sveinn Guðmundsson - D Aðalsteinn Snæbjörnsson - D
Sigurður Sigþórsson - D Andrés Jónsson - D
Guðmundur Ólafsson – J Þóra Kristín Magnúsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Húsnæðisnefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Björn Arnaldsson - D Urszula Zyskowska - D
June Beverly Scholtz – D Jón Guðmundsson - D
Guðmundur Ólafsson – J Guðrún Gísladóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Íþrótta- og æskulýðsnefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Brynja Mjöll Ólafsdóttir - D Pétur Pétursson - D
Elva Ösp Magnúsdóttir - D June Beverly Scholz - D
Erla Kristín Sigurðardóttir - D Sigrún Baldursdóttir - D
Ari Bent Ómarsson - J Vilborg Lilja Stefánsdóttir - J
Snædís Hjartardóttir - J Guðný H Jakobsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Lista- og menningarnefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Þórdís Björgvinsdóttir - D Hanna Björk Ragnarsdóttir - D
Guðrún Jenný Sigurðardóttir - D Sigríður Gísladóttir - D
Guðrún Anna Oddsdóttir - D Ríkharður Einar Kristjánsson - D
Gunnsteinn Sigurðsson - J Sigríður Margrét Vigfúsdóttir - J
Ragnheiður Víglundsdóttir - J Anna Þóra Böðvarsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Stjórn Byggðasafns:
Aðalmenn… varamenn…
Barbara Fleckinger - D Gunnar Hauksson - D
Lovísa Sævarsdóttir – D Svanfríður Þórðardóttir - D
Elsa Bergmundsdóttir - J Gunnsteinn Sigurðsson - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Stjórn Jaðars:
Aðalmenn… varamenn…
Sigrún Guðmundsdóttir – D Guðrún Karlsdóttir - D
Sigurður Arnfjörð Guðmundsson - D Lovísa Sævarsdóttir - D
Stefán Jóhann Sigurðsson - J Hrafnhildur Óskarsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Skólanefnd Snæfellsbæjar:
Aðalmenn… varamenn…
Örvar Már Marteinsson - D Kolbrún Ívarsdóttir - D
Júníana Óttarsdótttir – D Kristbjörg Karlsdóttir - D
Þóra Olsen – D Lára Pálsdóttir - D
Steiney Kristín Ólafsdóttir - J Alexander Kristinsson - J
Kristinn Jón Einarsson - J Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Landbúnaðarnefnd:
Aðalmenn… varamenn…
Óttar Sveinbjörnsson - D Bjarni Einarsson - D
Helgi Óskar Guðjónsson - D Jensína Guðmundsdóttir - D
Guðjón Jóhannesson - J Kristján Þórðarson - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Kjörstjórn - Ólafsvíkurdeild
Aðalmenn… varamenn…
Jóhannes Ólafsson - D Ólafur H Steingrímsson - D
Elva Ösp Magnúsdóttir - D Sigrún Þórðardóttir - D
Magnús Eiríksson - J Kristín Vigfúsdóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Kjörstjórn – Hellissands- og Rifsdeild
Aðalmenn… varamenn…
Ásta Dóra Valgeirsdóttir - D Jensína Guðmundsdóttir - D
Sæmundur Kristjánsson - D Guðbjartur Þorvarðarson – D
Halldór Kristinsson - J Hulda Skúladóttir - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Kjörstjórn – Staðarsveitar- og Breiðuvíkurdeild
Aðalmenn… varamenn…
Bjarni Einarsson - D Sigurður Vigfússon - D
Bjarni Vigfússon - D Heiða Helgadóttir - D
Guðmundur Sigurmonsson - J Jón Svavar Þórðarson - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Stjórn Náttúrugripasafns Hellissands:
Aðalmenn…
Smári Lúðvíksson
Lúðvík Ver Smárason
Halldór Kristinsson
Tillagan samþykkt samhljóða
Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands:
Aðalmaður… varamaður…
Óttar Sveinbjörnsson - D Ólafur Rögnvaldsson - D
Tillagan samþykkt samhljóða
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Aðalmaður… varamaður…
Jón Þór Lúðvíksson - D Kristjana Hermannsdóttir - D
Kristinn Jónasson - D Kristján Þórðarson - J
Tillagan samþykkt samhljóða
Rekstrarnefnd Rastar:
Aðalmenn…
Lilja Ólafardóttir (bæjarritari)
Jensína Guðmundsdóttir (f.h. bæjarstjórnar)
Inga Jóna Guðlaugsdóttir (f.h. félagasamtakanna)
Tillagan samþykkt samhljóða
Rekstrarnefnd Lýsuhóls:
Aðalmaður…
Lilja Ólafardóttir (bæjarritari)
Agnar Gestsson (f.h. bæjarstjórnar)
Þóra Kristín Magnúsdóttir (f.h. félagasamtakanna)
Tillagan samþykkt samhljóða
Rekstrarnefnd:
Aðalmenn…
Lilja Ólafardóttir (bæjarritari)
Jóhannes Ólafsson (f.h. bæjarstjórnar)
Jenný Guðmundsdóttir (f.h. félagasamtakanna)
Tillagan samþykkt samhljóða
7) Ráðning bæjarstjóra og prókúruumboð bæjarstjóra og bæjarritara.
Lagður var fram ráðningarsamningur við Kristinn Jónasson um stöðu bæjarstjóra Snæfellsbæjar næstu fjögur árin.
Til máls tóku JÞL, EBÖ, KJ, KÞ
Kristján kom með eftirfarandi bókun og tillögu f.h. bæjarfulltrúa J-listans
“Við bæjarfulltrúar J-listans teljum eðlilegt að húsaleigan sem bæjarstjóri greiðir af leiguhúsnæði sínu í eigu bæjarins taki mið af markaðsverði í Snæfellsbæ.
Jafnframt gerum við það að tillögu okkar að ráðningarsamningur bæjarstjóra og launakjör bæjarfulltrúa verði gerð opinber.
Kristján Þórðarson
Erla Björk Örnólfsdóttir
Fríða Sveinsdóttir”
Til máls tóku EBÖ, JÞL, KÞ, RÓ, KBÁ
Varðandi tillögu um að gera opinber launakjör bæjarstjóra og bæjarstjórnar, þá samþykkti bæjarstjórn samhljóða að fela bæjarráði að vinna tillögu að því.
Ráðningarsamningurinn við Kristinn samþykktur með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.
Endurnýjað prókúruumboð til bæjarstjóra og bæjarritara til fjögurra ára var samþykkt samhljóða.
Forseti vildi að þessu loknu taka fram að hann vonaði að samstarf minnihluta og meirihluta héldi áfram á þeim góðu nótum sem hefði verið undanfarin ár.
8) Fundargerð 29. fundar stjórnar Jaðars, dags. 26. maí 2010.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
9) Fundargerð 96. fundar hafnarstjórnar Snæfellsbæjar, dags. 26. maí 2010.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
10) Fundargerð 51. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 19. maí 2010.
Varðandi 1. lið, námusvæði vegna vegagerðar á Fróðárheiði.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
11) Fundargerð 52. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25. maí 2010.
Smári Björnsson tæknifræðingur mætti á fundinn og útskýrði einstök atriði fundargerðarinnar.
Varðandi 1. lið, umsókn um lóð að Sölvaslóð 12
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 2. lið, umsókn um lóð að Grundarslóð 4
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 3. lið, deiliskipulag frístundahúsa á Hellnum
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 4. lið, leyfi fyrir klæðningu að Engihlíð 2
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 5. lið, leyfi fyrir sólpalli og heitum potti að Háarifi 53
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 6. lið, leyfir fyrir klæðningu að Munaðarhól 14
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 7. lið, byggingarleyfi fyrir ferðaþjónustuhús við Lýsudal
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 8. lið, byggingaleyfi fyrir Sölvaslóð 1
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 9. lið, leyfi fyrir skilti við Kirkjutún 2
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 10. lið, stöðuleyfi fyrir sumarhús að Sölvaslóð 12
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 11. lið, starfsleyfi fyrir veitingabíl í Snæfellsbæ
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 13. lið, deiliskipulag fyrir olíubirgðastöð.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Til máls tóku KÞ, KJ, KH, FS, JÞL
Smári vék nú af fundi.
12) Fundargerð 100. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 11. maí 2010.
Bæjarstjórn vill, f.h. Snæfellsbæjar, þakka Leifi fyrir hlýhug og höfðinglega gjöf.
Lagt fram til kynningar.
13) Fundargerð 112. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 20. apríl 2010.
Lagt fram til kynningar.
14) Fundargerð 41. fundar Menningarráðs Vesturlands, dags. 26. apríl 2010.
Lagt fram til kynningar.
15) Fundargerð aðalfundar Menningarráðs Vesturlands, dags. 5. maí 2010.
Lagt fram til kynningar.
16) Fundargerð 774. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. maí 2010.
Lagt fram til kynningar.
17) Bréf frá leikskólastjóra leikskóla Snæfellsbæjar, dags. 10. maí 2010, varðandi nýja ljósritunarvél.
Samþykkt að fela bæjarstjóra að athuga verð á slíkum vélum og koma með kostnaðaráætlun fyrir bæjarráð.
18) Bréf frá Magnúsi Stefánssyni, dags. 10. júní 2010, varðandi lausn frá störfum í sveitarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að verða við beiðni Magnúsar og veita honum lausn frá störfum við bæjarstjórn Snæfellsbæjar út yfirstandandi kjörtímabil
19) Bréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 18. maí 2010, varðandi umsögn um umsókn um breyttan opnunar- og veitingatíma áfengis til handa Undir Jökli ehf., rekstraraðila Hótels Ólafsvíkur.
Bæjarstjórn samþykkti erindið samhljóða fyrir sína hönd.
20) Bréf Stykkishólmsbæjar og Grundarfjarðarbæjar, dags. 14. maí og 3. júní 2010, til Fjölbrautaskóla Snæfellinga og bréf Grundarfjarðarbæjar, dags. 18. maí 2010, varðandi kostnað við skólaakstur í FSN árin 2008 og 2009.
Til máls tók KÞ, KJ, KH
Lagt fram til kynningar.
21) Bréf frá Alm. umhverfisþjónustunni ehf., dags. 18. maí 2010, varðandi efnistöku til steypugerðar.
Náman er í fullri leigu og á meðan leigusamningur er í gildi er ekki hægt að gera neitt í þessu máli.
22) Bréf frá RKÍ, dags. 10. maí 2010, varðandi þakkir vegna framlags til hjálparstarfs vegna jarðskjálftanna á Haítí.
Lagt fram til kynningar.
23) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi tjaldstæði á Hellissandi.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að bæjarstjóra og tæknifræðingi verði falið nú þegar að sjá til þess að farið verði í framkvæmdir við tjaldstæðið á Hellissandi, sem felur í sér að lagt verði vatn og rafmagn að tjaldstæðinu. Jafnframt að keypt verði þjónustuhús á tjaldstæðið“
Til máls tók KÞ og kom með eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa J-listans
„Eins og fram kemur í tillögu J-listans hér aftar í dagskrá fundarins teljum við mjög brýnt að hafist verði handa við uppbyggingu tjaldsvæðisins á Hellissandi sem fyrst, en nauðsynlegt er að kostnaðaráætlun liggi fyrir áður en hafist verði handa, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárhagsáætlun 2010.“
Jón Þór tók til máls og sagði að búið væri að kanna kostnaðinn við þetta mál og hann væri um 9 milljónir. Sá peningur væri til á fjárhagsáætlun.
Til máls tóku EBÖ, KBÁ, RÓ, JÞL, KÞ
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.
24) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi göngustíga milli Hellissands og Rifs ásamt skipulagi göngustíga og gangstétta á sama svæði.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að gerður verði göngustígur milli Rifs og Hellissands. Til verksins verði fenginn landslagsarkitekt sem komi með tillögu að legu hans og muni hann jafnframt hanna heildstætt skipulag fyrir göngustíga og gangstéttir á Rifi og Hellissandi.
Bæjarstjóra og tæknifræðingi verði falið að hefja undirbúning nú þegar að lagningu göngustígsins milli Rifs og Hellissands.“
Til máls tók KÞ og sagði bæjarfulltrúa J-listans hjartanlega sammála þessu, en vildi gera þá breytingartillögu að fella út síðustu málsgrein þar sem lítið væri hægt að undirbúa fyrr en búið væri að fá tillögur frá landslagsarkitekt.
Til máls tók JÞL og sagði þessa málsgrein vera til þess að farið væri að byrja á verkefninu, ekki að farið verði í framkvæmdir áður en tillaga arkiteksins lægi fyrir.
Til máls tóku KBÁ, EBÖ, KJ
Bæjarstjórn varð sammála um það að gera þá breytingu á síðust málsgrein að hún hljómaði þannig að „bæjarstjóra og tæknifræðingi verði falið að hefja nú þegar undirbúning.“
Tillagan samþykkt samhljóða.
25) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að skipuð verði nefnd 5 aðila, þ.e. bæjarstjóra, forstöðumanni tæknideildar, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, fulltrúa D-listans og fulltrúa J-listans, til að koma með tillögu að breytingum á núverandi sundlaug ásamt því að gerð verði aðstaða fyrir heita potta við sundlaugina utandyra. Nefndinni verði jafnframt heimilt að fá til sín fagaðila til að aðstoða við gerð tillögunnar sem síðan mun verða lögð fyrir bæjarstjórn Snæfellsbæjar ásamt kostnaðaráætlun“.
Til máls tók KÞ, JÞL
Tillagan samþykkt samhljóða. Samþykkt að tilnefna fulltrúa listanna á næsta bæjarráðsfundi.
26) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi starfshóp til stuðnings vinnu við umferðaröryggisáætlun Snæfellsbæjar sem þegar er verið að vinna að.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að skipaður verði starfshópur sem falið verði að styðja við þá vinnu sem þegar er byrjað á vegna umferðaröryggisáætlunar Snæfellsbæjar. Í þessum hópi sitji yfirmaður tæknideildar, fulltrúi frá D-lista og fulltrúi frá J-lista ásamt fulltrúum frá umhverfis- og skipulagsnefnd. Nefndinni verði jafnframt falið að leita til fagaðila við gerð umferðaröryggisáætlunarinnar, þ.á.m. til lögreglu, Umferðarstofu og annarra sem geti veitt faglega aðstoð og upplýsingar.“
Til máls tók KÞ, JÞL, KJ, EBÖ
Tillagan samþykkt samhljóða. Samþykkt að tilnefna fulltrúa listanna á næsta bæjarráðsfundi.
27) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi efnisval og legu girðingar við leikskólann Kríuból á Hellissandi.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að skipaður verði starfshópur sem komi með tillögu að endurnýjun girðingar við leikskólann Kríuból á Hellissandi. Í starfshópnum verði forstöðumaður tæknideildar, leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri leikskólans Kríubóls, ásamt fulltrúum D-lista og J-lista. Hópurinn komi með tillögu að efnisvali og legu girðingarinnar og láti jafnframt gera kostnaðaráætlun fyrir verkið.“
Til máls tók KÞ, KJ
Kristján lagði fram eftirfarandi bókun:
„Bæjarfulltrúar J-listans fagna þessari tillögu meirihlutans“
Tillagan samþykkt samhljóða. Samþykkt að tilnefna fulltrúa listanna á næsta bæjarráðsfundi.
28) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, varðandi starfshóp til að fara yfir og koma með tillögur um húsnæðismál leikskólans Krílakots í Ólafsvík.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að skipaður verði starfshópur sem fari yfir og komi jafnframt með tillögur um húsnæðismál leikskólans Krílakots í Ólafsvík. Í starfshópnum verði bæjarstjóri, forstöðumaður tæknideildar, leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri leikskólans Krílakots, ásamt fulltrúum D-lista og J-lista.“
Til máls tók KJ
Tillagan samþykkt samhljóða. Samþykkt að tilnefna fulltrúa listanna á næsta bæjarráðsfundi.
29) Tillaga bæjarfulltrúa D-listans, dags. 8. júní 2010, um að bæjarritara verði falið að gera tillögu að nýrri heimasíðu fyrir Snæfellsbæ.
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar D-listans gerum að tillögu okkar að bæjarritara verði falið að skoða og koma í framhaldi með tillögu að nýrri heimasíðu fyrir Snæfellsbæ, ásamt því að koma með kostnaðaráætlun við heimasíðugerð.“
Tillagan samþykkt samhljóða.
Kristján kom með eftirfarandi tillögu f.h. bæjarfulltrúa J-listans
„Í framhaldi afgreiðslu þessara tillagna Sjálfstæðismanna, viljum við bóka að rík þörf er á heildstæðri stefnumótun og forgangsröðun framkvæmda í bæjarfélaginu með hagsmuni íbúa að leiðarljósi þannig að fjármunir bæjarsjóðs nýtist sem best
Kristján Þórðarson
Erla Björk Örnólfsdóttir
Fríða Sveinsdóttir“
Jón Þór óskaði eftir að eftirfarandi yrði bókað
„Við fulltrúar D-listans teljum okkur alltaf hafa haft hagsmuni íbúanna að leiðarljósi og reynt að nýta fjármuni bæjarfélagsins sem best“
30) Tillaga bæjarfulltrúa J-listans, varðandi íbúaþing og fjölskyldustefnu Snæfellsbæjar.
„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkir að haldið verði íbúaþing vegna mótunar Fjölskyldustefnu Snæfellsbæjar. Stefnt verði á að Íbúaþingið verði haldið í haust, áður en vinna við gerð fjárhagsáætlunar 2011 hefst.
Bæjarstjórn tilnefni 2-3 einstaklinga til að vinna að undirbúningi þessa máls í sumar.
Greinargerð:
Gerð fjölskyldustefnu sveitarfélaga er eins og fram kemur á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins: “..... stjórntæki til að ná þeim markmiðum sem sveitarfélagið setur sér, á þeim tíma sem tilgreindur er og með þeim aðferðum sem stefnan kveður á um.” Líta má svo á að markmiðssetning fjölskyldustefnu geti mótast af þeirri trú og væntingum sem sveitarfélagið gerir til íbúa sinna sem og að mæta þörf íbúa fyrir lögbundna þjónustu. Fjölskyldustefna tekur til allra þátta samfélagsins, á leið einstaklingsins frá vöggu til grafar og getur skilað sér í aukinni jákvæðni, frumkvæði, sköpun, framlegð og öryggi íbúa sem allt í senn styrkir samfélagið. Enda er markmið mótunar fjölskyldustefnu að “hafa æskileg áhrif eða skapa eftirsóknarvert ástand.”
Þátttaka íbúa í mótun fjölskyldustefnu er mikilvæg og almennir íbúafundir eru góð leið til þess að laða fram hugmyndir íbúa um skilgreind málefni. Farsæl fjölskyldustefna byggir á sterkum grunn gildum (svo sem skólastefnu sem þegar hefur verið mótuð fyrir Snæfellsbæ) þar sem tekið er tillit til þarfa allra íbúa samfélagsins.
Undirbúningsnefnd íbúafundar á haustmisseri verður falið að skipuleggja með hvaða hætti þátttaka íbúa í þessu mikilvæga mótunarstarfi verði tryggð.“
Til máls tóku EBÖ, KBÁ,
Kristinn Jónasson tók til máls og óskaði eftir því að bókað yrði verði hver kostnaðaráætlun vegna þessarar tillögu verði. Erla Björk svaraði því til að gert yrði ráð fyrir að mikið yrði unnið í sjálfboðavinnu, en starfsmaður yrði ráðinn í 3-4 mánuði, kostnaðurinn færi eftir hversu dýr hann yrði, en líklega í kringum 2 milljónir.
Til máls tóku JÞL, EBÖ, KBÁ, KÞ
„Bæjarstjórn samþykkti samhljóða breytingartillögu þar sem Kristín Björg Árnadóttir, Erla Björk Örnólfsdóttir og bæjarritari, í samvinnu við Atvinnuráðgjöf Vesturlands, verði skipuð í starfshóp til að vinna að undirbúningi fjölskyldustefnu Snæfellsbæjar.“
Breytingartillagan samþykkt samhljóða.
31) Tillaga bæjarfulltrúa J-listans, varðandi tjaldsvæði bæjarins á Hellissandi.
„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkir að flýta sem kostur er framkvæmdum við tjaldsvæði bæjarins á Hellisandi.
Bæjartæknifræðingi verði falið að gera kostnaðaáætlun vegna verksins sem lögð verður fyrir Bæjarstjórn/ráð sem síðan taki ákvörðun um framhaldið.
Greinargerð:
J-listinn telur mikilvægt að skipulagsmálum tjaldsvæða í Snæfellsbæ verði komið á hreint. Óumdeilt er að tjaldsvæðið á Hellissandi sitji þar í öndvegi en jafnframt ber að viðhalda tjaldsstæði inni í dal við Ólafsvík. J-listinn telur ekki þörf á tveimur tjaldsvæðum í Ólafsvík og leggur því til að svæðið upp við Heilsugæslustöð fái nýtt og nýstárlegra hlutverk sem útivistarsvæði. Til dæmis mætti setja þar upp grillaðstöðu með trjágróðri, rjóðrum með borðum og bekkjum og annarri aðstöðu fyrir heimamenn sem gesti.”
Varðandi afgreiðslu tillögunnar þá er vísað í afgreiðslu tillögu sama efnis í 23. lið.
Til máls tóku JÞL, FS, EBÖ, KJ, KH
32) Umboð til bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar gerði það að tillögu sinni að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til að starfa sem bæjarstjórn vegna sumarleyfis bæjarstjórnar í júlí og ágúst.
Tillagan samþykkt samhljóða
33) Minnispunktar bæjarstjóra
Bæjarstjóri kynnti stöðuna í eftirfarandi málum:
a) Bæjarstjóri kynnti stöðuna við Vatnsverksmiðjuna í Rifi
b) Unglingavinnan er hafin hjá okkur.
c) Það er komin skíðalyfta upp í Snæfellsjökul og var hún sett upp á vegum áhugahóps.
d) Vatnshellir verður formlega vígður kl. 14:00 í dag
e) Fundur bæjarfulltrúa með endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte verður á Hótel Ólafsvík kl. 16:00
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:30 |