Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helgason verður frumsýndur í Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi þann 1. júní næskomandi. Miðaverð er einungis 2.500 kr og hægt er að nálgast miða á miði.is eða síma: 893-0480.
Um sýninguna:
Þeir Skúli og Spæli eru tveir trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neitt annað starf, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og gosbrunnur. Spæli er hins vegar krumpuð og tortryggin týpa. Fljótlega kemur babb í bátinn. Spæli kemst að því að þeir félagar hafi greinilega enn einu sinni lent á vitlausum áhorfendum sem hlæja á kolröngum stöðum.
Trúðleikur er sprellfjörugur, og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Sýningin er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um síðustu aldamót. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á eftir einleiknum "HETJU" og karíókísplatternum "Góðir Hálsar" sem báðar hlutu frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda á sínum tíma.
Leikstjóri: Halldór Gylfason
Leikarar: Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson
Sýningatímar:
22.06.2012 - Föstudagur, kl. 17:00
01.07.2012 - Sunnudagur, kl. 17:00
12.07.2012 - Fimmtudagur, kl. 17:00
13.07.2012 - Föstudagur, kl. 17:00
14.07.2010 - Laugardagur, kl. 17:00