17. maí 2013 11:54 | |
Sumarstörf með fötluðum börnum | |
Sumarstörf – sumarstörf – sumarstörf
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir umsóknum um sumarstarf með fötluðum börnum/ungmennum fyrir sumarið 2013, Í Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Vinnutími alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00. Tímabil: Júní og júlí Við auglýsum einnig eftir afleysingarstarfsmanni í Ásbyrgi – vinnustofu/hæfingu fatlaðs fólks í Stykkishólmi frá 1.júlí til 15.ágúst. Vinnutími virka daga, frá kl. 8.00 – 16.00. Starf við liðveislu Einnig auglýsum við eftir umsóknum um starf í liðveislu með fötluðum börnum/ungmönnum. Afar hentugt með skóla eða sem aukavinna. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SDS. Umsækjendur þurfa að; · Vera orðnir 18 ára · Framvísa sakavottorði með umsókn · Gera grein fyrir menntun og fyrri störfum Frekari upplýsingar veitir Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, ráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í síma 430-7800. Umsóknir skulu berast Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Hellissandi eða í tölvupósti svanhvit@fssf.is . Umsóknarfrestur er til og með 27.maí Forstöðumaður
| |
17. maí 2013 11:53 | |
FSN auglýsir eftir fjármálastjóra | |
Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fjármálastjóra í 50% stöðu til afleysingar frá 01.08.2013 -01.02.2014. Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans. Fjármálastjóri annast allar fjárreiður skólans. Í því er meðal annars fólgið að færa bókhald, gera fjárhags- og rekstraráætlanir, afstemmingar og fleira. Menntunar og hæfniskröfur: · Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
· Skipulögð/lagður. · Góð tölvukunnátta. · Hæfni í mannlegum samskiptum. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði. Umsóknarfrestur er til 30.maí 2013. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 8917384. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann. Skólameistari | |
6. mars 2013 15:47 | |
Stuðningsfjölskyldur | |
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga leitar eftir stuðningsfjölskyldum á Snæfellsnesi til samstarfs við stofnunina og félagsmálanefnd Snæfellinga.
Viðfangsefni: Tímabundin viðtaka og umönnun skjólstæðinga FSS, sbr. lög og reglugerðir um málefni barnarverndar, þ.m.t. úrræði á vegum aðildarsveitarfélaga FSS.
Umsóknir berist undirrituðum sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar.
Sveinn Þór Elinbergsson, forstm.
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ
s. 430 7800.; sveinn@fssf.is | |
20. september 2012 11:37 | |
Menningarstyrkir fyrir árið 2013 | |
Menningarráð Vesturlands auglýsir menningarstyrki fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur rennur út 18. nóvember 2012. | |
15. október 2009 09:32 | |
Skrifstofa sýslumanns Snæfellinga í Snæfellsbæ | |
Vegna breytinga á símakerfi embættisins eru númer þess í Snæfellsbæ eftirfarandi: Skrifstofan: 430-4126 Lögreglan: 430-4146 Skrifstofan að Bankastræti 1 a er opin, frá kl. 10:00 til kl. 14:00 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Upplýsingar um netföng starfsmanna er að finna á síðunum http://www.syslumenn.is og http://www.logreglan.is Sýslumaður Snæfellinga Ólafur K. Ólafsson
| |
25. apríl 2006 14:12 | |
Símanúmer hjá stofnunum Snæfellsbæjar | |
Bæjarskrifstofa 433-6900 fax 433-6901
Áhaldahús 433-6920 Ólafsvíkurhöfn 433-6921 Hafnarstjóri 433-6922 Rifshöfn 433-6924 Leikskólinn Krílakot 433-6925 Leikskólinn Kríuból 433-6926 Bókasafn 433-6928 Pakkhúsið 433-6930 Dvalarheimilið Jaðar 433-6931 Félagsheimilið Röst 433-6932 Íþróttahús Snæfellsbæjar 433-9912 Sundlaugin í Ólafsvík 433-9910
| |
13. júlí 2005 13:58 (36 lesendur hafa sagt álit sitt) | |
Viðbrögð við grun um illa meðferð dýra | |
Umhverfisstofnun og Embætti Yfirdýralæknis telja þörf á að skýra verklag og verkaskiptingu aðila þegar grunur leikur á illri meðferð dýra.
| |
13. október 2004 09:56 (35 lesendur hafa sagt álit sitt) | |
FÍKNIEFNASÍMINN: 800-5005 | |
Upplýsingasíminn 800-5005 er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. | |
13. október 2004 09:55 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) | |
Útivistartími barna | |
24. ágúst 2004 14:16 | |
Opnunartímar sundlaugar | |
29. apríl 2004 09:49 | |
Hesteigendur í Snæfellsbæ | |
1. september 2003 00:05 | |
Til eigenda vörubíla og vinnuvéla í Snæfellsbæ | |
2. júní 2003 10:30 (3 lesendur hafa sagt álit sitt) | |
Fjölbrautarskóli Snæfellinga |