26 leikja taplausri hrinu Víkings-manna endaði í gær þegar liðið beið lægri hlut gegn Íslandsmeisturum FH í hörku leik sem háður var á Kaplakrikavelli. Víkingar komu ákveðnir til leiks eins og þeim er von og vísa og gáfu sterku FH liði ekkert eftir.
![]() |
| Mynd: Alfons Finnsson |
Kæru íbúar Snæfellsbæjar, í dag þann 28. júlí fer fram leikur leikjanna hjá Víkingi Ó þar sem þeir mæta FH í vísa bikarnum. Allir íbúar Snæfellsbæjar eru hvattir til að mæta á Kaplakrikavöllinn og hvetja sína menn ! Stuðningsmenn Víkings hittast kl. 16:30 og hita upp fyrir átökin á plani Glugga og Hurðasmiðjunnar sem staðsett er að Hvaleyrarbraut 39 Hafnarfirði. Pylsur og gos í boði Söluskála ÓK, Brauðgerð Ólafsvíkur og Vífilfells. Andlitsmálun verður fyrir börnin auk þess sem Víkingsbolir og derhúfur verða til sölu.