Sr. Óskar Ingi Ingason tók við embætti sóknarprests í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli þann 1. júní sl. en hann tekur við af sr. Ragnheiði Karitas Pétursdóttur sem lét af embætti og flutti til Noregs í vor. Í sameiginlegri messu Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssafnaða á sunnudag setti sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur í Vesturlandsprófastdæmi, sr. Óskar formlega í embætti. Sr. Óskar er þó búinn að prófa kirkjurnar svolítið því að hann fermdi í báðum sóknum um hvítasunnuhelgina.
Að lokinni messu sem fram fór í Ólafsvíkurkirkju var kirkjugestum boðið upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimilinu áður en haldið var út í góða veðrið.