22. maí 2013 09:04 | ||
Allir á sjó | ||
| ||
17. maí 2013 11:55 | ||
Íslenskar ofurkonur í Átthagastofunni | ||
|
| ||
13. maí 2013 09:20 | ||
Skilti um Jóhann Jónsson skáld | ||
Nú er Áhaldahús Snæfellsbæjar búið að setja upp fyrsta skiltið við Ólafsbrautina, gengt Aprótekinu og Blómaverk. Það skilti er um Jóhann Jónsson, skáld, sem fæddist árið 1896 að Staðastað í Staðasveit, en flutti ungur til Ólafsvíkur þar sem hann ólst upp. | ||
10. maí 2013 07:00 | ||
Vinnuskóli Snæfellsbæjar | ||
Vinnuskóli Snæfellsbæjar verður starfræktur sumarið 2013 frá 3. júní til 28. júní fyrir 8. bekk, alls 4 vikur og 3. júní til 12. júlí fyrir 9. og 10. bekk, alls 6 vikur.
| ||
8. maí 2013 10:20 | ||
Atvinna í boði fyrir námsmenn 2013 | ||
Snæfellsbær hefur eftirfarandi störf laus til umsóknar fyrir námsmenn, 18 ára og eldri sumarið 2013. Störfin eru í tengslum við tímabundið átaksverkefni Vinnumálastofnunar. Ráðningartími er 2 mánuðir.
| ||
8. maí 2013 09:04 | ||
Gengið á Ennið 9. maí | ||
Saman klífum við brattann - gengið á bæjarfjöll 2013-2014 | ||
Þorsteinn Jakobsson, fjallagarpur með meiru, hefur undanfarið unnið að tindaverkefni sem felst í því að klífa bæjarfjöll á Íslandi. Þorsteinn hefur ákveðið að ljúka verkefninu í samstarfi við Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna á næstu 12 mánuðum og láta áheit í tengslum við göngurnar renna til SKB. Samstarfsverkefnið hefur hlotið nafnið Saman klífum brattann en baráttu krabbameinsveikra barna má oft og tíðum líkja við fjallgöngu sem stundum er erfið vegna bratta og klungurs en svo koma tímar og svæði inn á milli sem ekki eru jafnerfið yfirferðar.Samstarfið hófst formlega með göngu á bæjarfjall Hafnfirðinga, Helgafellið, laugardaginn 6. apríl. Síðan var gengið á Keili, Úlfarsfell, Akrafjall og Reynisfjall. Fimmtudaginn 9. maí er röðin komin að Enninu og Drápuhlíðarfjalli síðar sama dag. Gangan hefst við íþróttahúsið kl. 10.00. Gangan tekur um tvær klukkustundir og er öllum heimil þátttaka án greiðslu þátttökugjalds en þátttakendum sem og öðrum bent á að hægt er að styðja verkefnið með frjálsum framlögum inn á reikning SKB. Upplýsingar um hann eru á heimasíðu SKB, www.skb.is og Facebook-síðu félagsins.Meðfram þessum göngum er Þorsteinn að vinna að bók um fjöll og fjallgöngur sem kemur út á næsta ári og renna höfundarlaun hans til SKB.Þorsteinn hefur síðustu ár helgað sig stuðningi við Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra, m.a. með svokölluðum ljósafossgöngum niður Esjuna 2010, 2011 og 2012. Árið 2009 sló hann Íslandsmet þegar hann gekk sjö sinnum upp og niður Esjuna. Árið 2010 gekk hann á tíu tinda á tólf tímum og toppaði 365 fjöll á árinu. | ||
6. maí 2013 09:32 | ||
Tap í fyrsta leik | ||
Framarar byrjuðu leikinn mun betur og komust snemma yfir með marki Almars Ormarssonar. Heimamenn komust betur inn í leikinn þegar leið á fyrri hálfleik en Bjarni Hólm Aðalsteinsson jók muninn í 2:0 á 36. mínútu eftir hornspyrnu. Steinar Már Ragnarsson minnkaði muninn í kjölfarið fyrir Víkinga og staðan því 2:1 í hálfleik. Heimamönnum gekk ekkert að jafna metin í seinni hálfleiknum, sköpuðu sér vart færi og urðu að sætta sig við tap. Framarar hefðu getað bætt við marki, sérstaklega þegar Steven Lennon slapp aleinn í gegnum vörn Víkinga, en þeir fengu litlu fleiri færi. | ||
2. maí 2013 08:12 | ||
Dýrt að byrja strandveiðar frá grunni | ||
Hann segir að mikill fjöldi muni stunda strandveiðarnar frá Snæfellsnesi og trillukalla annars staðar frá hafi drifið að síðustu daga. „Það er svo mikill fjöldi báta hér á vestursvæðinu að við fáum ekki marga daga í hverjum mánuði og mér finnst að það mætti gjarnan breyta þessari skiptingu eitthvað,“ segir Ólafur.Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Ólafur afkomuna þó ekkert til að hrópa húrra fyrir. „Það verður ekki mikið eftir því það fer ótrúlega mikið í sjálft sig, alls konar gjöld, eftirlit og búnað. Ég skil ekki hvernig menn fara að þessu sem þurfa að byrja frá grunni og kaupa bát og búnað. Startið í þessu er ekkert sem venjulegur maður ræður við, til þess að geta byrjað frá núlli þurfa menn að sitja á peningahrúgu.“ | ||
30. apríl 2013 09:13 | ||
Víkingar á Lýsuhóli | ||
30. apríl 2013 09:08 | ||
Gunnar Bjarnason að mokfiska | ||
29. apríl 2013 08:23 | ||
Aflamet við Öndverðarnes | ||
29. apríl 2013 08:17 | ||
Sigurfari strandaði við Rif | ||
23. apríl 2013 08:52 | ||
Skólakór Snæfellsbæjar á Landsmóti barnakóra | ||
12. apríl 2013 09:12 | ||
Ársreikningur Snæfellsbæjar 2012 | ||
9. apríl 2013 09:06 | ||
Hvalir við Ennisbrautina | ||
2. apríl 2013 11:45 | ||
SUMARSTÖRF | ||
6. mars 2013 09:25 | ||
Útboð | ||
4. mars 2013 13:12 | ||
Alþingiskosningar 27. apríl n.k. | ||
26. febrúar 2013 08:21 | ||
Íbúakönnun vegna umhverfisvottunar | ||
13. febrúar 2013 09:19 | ||
Glæsilegt þorrablót á Jaðri | ||
8. febrúar 2013 09:32 | ||
Stúkan stækkar | ||
31. janúar 2013 11:05 | ||
Ekki snerta jörðina! | ||
28. janúar 2013 08:21 | ||
Listasýning í Atthagastofunni | ||
25. janúar 2013 13:44 | ||
Greiðsluseðlar á island.is | ||