12. júní 2012 08:36 |
Varp kríu og ritu fer vel af stað |
|
Varp ritu og kríu hefur misfarist nánast algjörlega síðustu tvö til þrjú árin og verið í slakara lagi frá árinu 2004. „Hjá ritunni skoðuðum við 240 hreiður og þar af voru tveir þriðju með tveimur eggjum í hreiðri. Undanfarin þrjú ár hafa hreiður með ekkert eða eitt egg verið í meirihluta. Þetta bendir til að fullorðnu riturnar séu í betra líkamlegu ásigkomulagi núna,” segir Jón Einar. Hann segir að framvindan fari reyndar mikið eftir sílisgengd síðsumars. Varp bæði kríu og ritu byrjaði ágætlega vorið 2008 en síðan brást sílagengdin síðsumars sem olli miklum afföllum. Auk skoðunar á varpinu í Hvítabjarnareyjum verður líka farið í björgin til eggjatalningar, í Svörtuloft, Þúfubjarg og á Arnarstapa. Sá leiðangur verður farinn í næstu viku, að sögn Jóns Einars.
Fréttin er fengin af vef Skessuhorns. |