Stjórnaðu leturstærð vefsins hér til hægriMinnsta leturMiðstærð letursStærsta letur
RSS
Senda fyrirspurnPrenta út þessa síðu
LeitaSýna allt veftréð

Stjórnkerfið
Þjónusta
Tæknideild
Um Snæfellsbæ
Myndaalbúm
Tenglar
Lausar lóðir
Skipulag

  BÆJARDYRNAR

     
__________________
            2013
 
_____________
     

 

3. bekkur GSNB setur niður kartöflur

 


Ferðast þú í sumar?

Já, innanlands

Já, erlendis

Bæði innanlands og erlendis

Nei, verð bara heima

Núna eru

að skoða vef
Snæfellsbæjar

 

 

  

 

 

 

 

   

 

 Svæðisgarður

 

Frystiklefinn

 

 

31. júlí 2012 09:52

Uppgröftur á Gufuskálum

Á Gufuskálum nánar tiltekið við Gufuskálavör eru nú á bilinu 11 til 13 fornleifafræðingar við uppgröft á verstöð sem talið er að sé að öllum líkindum frá því á 15. öld. Verkefnið er á vegum fornleifastofnunar Íslands í samstarfi við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og fornleifavernd ríkisins. Einnig eru tveir erlendir háskólar í samsstarfinu, Cuny háskóli í Bandaríkjunum og Stirling í Bretlandi, eru þeir að taka sýni til að athuga gjósku- og mannvistarlög á svæðinu.

Að sögn Lilju Bjarkar Pálsdóttur sem er ábyrgðaraðili verkefnisins eru þau með fjármagn til fjögurra vikna á þessu ári og tveimur þeirra lokið nú þegar þetta er skrifað. Vonast hún til að sá tími dugi til að klára tóftina sem unnið er með núna en haldið verður áfram á næsta ári. Verkefnið hófst árið 2008 og er í raun björgunaraðgerðir en markmiðið er að rannsaka manngerða hóla sem liggja undir skemmdum frá sjó og vindi er vonast til að verkefnið leiði í ljós hve mikið er eftir af mannvistarleifunum, hvernig þær tengjast. Margir merkilegir hlutir hafa fundið ýmiskonar handverk, heimagerðir tálgaðir taflmenn úr ýsubeini, það áhugaverðasta í sumar er teningur úr rostungstönn en fundur hans bendir til að hlutir hafi verið fullunir á staðnum. Verkefni sem þetta er verkefni til margra ára og sér Lilja Björg fyrir sér að þegar búið er að gera verstöðina gæti framhaldið verið að skoða umhverfið í kring og svæðið á milli húsana og til hvers það var nýtt. Sagði Lilja Björg að lokum að mjög vel hefði verið tekið á móti þeim og allir áhugasamir um það sem verið var að gera.

þa

 

Fréttin er fengin úr bæjarblaðinu Jökli.


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit