30. júlí 2012 10:13 |
Frábærar viðtökur íbúa með endurvinnslutunnurnar |
Ef við skoðum þetta í tölum þá var heildar sorpmagn í síðustu losun 10.015 kg og skiptist þannig að heimilissorp var 5.168 kg og endurvinnanlegt 4.847 kg eða 48% af sorpmagninu sem er langt fram úr okkar björtustu vonum um það sem fólk myndi flokka. |
Ef við skoðum hvernig þetta skiptist eftir bæjarhlutum þá var þetta þannig að í Ólafsvík komu 2.360 kg., Hellissandi 1.340 kg., Rifi 820 kg. og í sveitum sunnan Fróðárheiðar 327 kg. Þessar góðu viðtökur gera það að verkum að mun minna magn verður urðað í framtíðinni í Fíflholtum sem aftur þýðir að við spörum töluverða fjármuni í urðunarkostnað svo ekki sé talað um hin umhverfislegu áhrif sem flokkunin hefur, því allt sem flokkað er verður endurnýtt á einhvern hátt. Heilt yfir má segja að allir hafi flokkað rétt en þó bar örlítið á því að fólk var að setja glerkrukkur og bleyjur í endurvinnsluna en hvoru tveggja á að fara í hina tunnuna. Af um 600 endurvinnslutunnum þá var einungis í tveimur tilfellum sem fólk hirti ekki um að flokka og lét óflokkað sorp í báðar tunnur, á þeim stöðum var sorpið ekki tekið. Þessi árangur er frábær og við megum öll vera stolt af honum. Það er gaman að segja frá því að Gámaþjónusta Vesturlands sem þjónustar Snæfellsbæ í sorpmálum keypti sérstaklega nýjan bíl til að sinna þessu verkefni og er hann þannig útbúinn að í honum eru tvö hólf annað sem tekur heimilissorp og hitt sem tekur endurvinnanlegt og þess gá geta að fyrirtækið lét setja mjög fallegar myndir úr Snæfellsbæ á bílinn.Til hamingju íbúar Snæfellsbæjar með frábæran árangur í flokkun á sorpi í Snæfellsbæ þið eruð til fyrirmyndar.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.
Fréttin er fengin úr bæjarblaðinu Jökli. |