Í síðustu viku lauk leikjanámskeiði á vegum Víkings/Reynis. Þar hafa um það bil 50 börn á aldrinum 5 til 12 ára með 7 umsjónarmönnum skemmt sér við margvísleg verkefni. Farið var á hestbak, í veiðiferð, fyrirtæki heimsótt. Farið í fjöruferð, fossferð og í hina ýmsu leiki. Að venju voru svo leikir og grill síðasta daginn. Fótboltanámskeið á vegum Víkings /Reynis hófst svo síðasta mánudag og stendur fram til 29.júní. Það er greinilegt að börnin hafa nóg fyrir stafni á þessum námskeiðum og hafa mikla ánægju af. Myndin var tekin í sjómannagarðinum í Ólafsvík. þa