Boðið verður upp á fótboltanámskeið fyrir börn á aldrinum 5-12 ára dagana 18.-29. júní. Námskeiðið stendur yfir í 2 vikur en ekki er kennt um helgar. Kennt er frá kl. 10:00-12:00 mánudag til föstudags.
Markmið fótboltanámskeiðsins er að veit krökkum holla og góða hreyfingu auk þess fá krakkarnir innihaldsríka grunnþekkingu á knattspyrnu. Ekki er nokkur spurning um að þetta sé frábært tækifæri fyrir stráka og stelpur sem vilja bæta sig í knattspyrnu enda aukaæfingin mikilvæg fyrir þá sem vilja ná langt í greininni. Farið verður yfir tækni, snerpu og úthald.
- Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum aukaæfingu en eins og dæmin hafa sýnt felst lykillinn að góðum árangri í auknum æfingum og endurtekningum. „Æfingin skapar meistarann“.
- Einnig verður boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun.
Nánari dagskrá knattspyrnuskólans afhendir umsjónarmaður sem er líkt og undanfarin á Ejub Purisevic. Skránin fer fram við mætingu á fyrsta degi þann 18. Júní.
Verðskrá
Verð: 1 barn.............................. 8.000 kr.
Verð: 2 börn............................... 12.000 kr.
Verð: 3 börn.................................14.000 kr.